Erlent

Auglýsa með nafni eftir manni vegna morða á vændiskonum

Breska lögreglan hefur auglýst, með nafni, eftir eiganda BMW bifreiðar, í tengslum við morðin á fimm vændiskonum í Ipswich. Maðurinn er einn af þúsundum farandverkamanna frá Austur-Evrópu sem koma til Suffolk ár hvert til þess að vinna í landbúnaði. Hann hefur ekki sést síðan á miðvikudag.

Bíllinn fannst rétt hjá þeim stað sem þrjár af myrtu konunum fundust. Vændiskona í Ipswich skýrði lögreglunni frá því að hún hefði séð eina hinna myrtu fara upp í bláa BMW bifreið, sem hefði ekið á brott meða hana. Hún hefði ekki sést aftur á lífi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×