Tónlist

Tónleikar fyrir krabbabeinssjúk börn

Sálin hans Jóns míns spilar til styrktar krabbameinssjúkum börnum.
Sálin hans Jóns míns spilar til styrktar krabbameinssjúkum börnum.

Það er orðinn árviss viðburður að framvarðasveit íslenskrar popptónlistar komi saman við áramót í Háskólabíói við Hagatorg og stilli saman strengi til styrktar SKB. Árið í ár er engin undantekning og hefur dagskráin sjaldan eða aldrei verið eins glæsileg. Á undanförnum árum hafa yfir 14 milljónir króna safnast á þessum tónleikum, og nú er markmiðið að sú upphæð hækki í a.m.k. sextán milljónir króna. Þess má geta að hljómsveitin Sálin hans Jóns míns sem kemur fram á tónleikunum kemur nú fram á þessum tónleikum í áttunda sinn. Þannig hefur sveitin komið fram öll árin sem þessir tónleikar hafa verið haldnir.

Að gefnu tilefni er rétt að láta það fylgja að á tónleikunum í gegnum tíðina hefur komið fram rjómi þekktustu tónlistarmanna landsins á hverjum tíma og hafa allir þeir sem komið hafa að tónleikunum gefið vinnu sína til fulls. Háskólabíó gefið húsnæðið. Um leið hafa allir tæknimenn og aðrir starfsmenn tónleikanna gefið vinnu sína. Öll fyrirtæki sem að verkefninu hafa komið hafa líka gefið alla sína vinnu. Að sjálfssögðu er engin breyting þar á.

"Þetta er í áttunda árið sem við förum í þetta tónleikahald. Þetta er bara partur af hátíðar undirbúningnum hjá mér og mér finnst þetta bara ómissandi. Það er með eindæmum hvað íslenskt tónlistarfólk er örlátt á tíma sinn og hæfileika og ég verð að segja að þetta árið eru listi flytjenda alveg óvenju glæsilegur. Ég er mikið stoltur yfir þessu verkefni og þakklátur öll þeim sem lætur þetta verða að veruleika á hverju ári með mér" sagði Einar Bárðarson sem nú skipuleggur þessa tónleika áttunda árið í röð.

Tónleikarnir fara sem fyrr segir fram í Háskólabíói fimmtudagskvöldið 28. desember og hefjast stundvíslega kl. 18:00

 

Eftirtaldir listamenn hafa staðfest þátttöku í tónleikunum en listinn hefur haft þá tilhneiginu að lengjast þegar nær dregur

Sálin hans Jóns míns

Gospel Kór Reykjavíkur

Bubbi Morthens

Papparnir

Skítamórall

Magni & Á móti Sól!

Páll Óskar Hjálmtýrsson

Gardar Thór Cortes

Jón Jósep Snæbjörnsson

Stebbi og Eyvi

Birgitta Haukdal

Nylon

Snorri

Ingó

Bríet Sunna

Árlega greinast að meðaltali 10 - 12 börn og unglingar 18 ára og yngri

með krabbamein á Íslandi. Markmðið með stofnun Styrktarfélags

krabbameinssjúkra barna var m.a. að styðja við bakið á þeim og

aðstandendum þeirra bæði fjárhagslega og félagslega. Í upphafi hafði

félagið takmarkað bolmagn til framkvæmda en úr rættist

með stórri landssöfnun 1993, þá var m.a. stofnaður neyðarsjóður sem

meðlimir SKB geta sótt um fjárstyrk úr. Fimm manna nefnd metur umsóknir

og úthlutar styrkjum en tengist SKB ekki að neinu öðru leyti.

Neyðarsjóðurinn er í raun tiltekin fjárupphæð sem stjórn SKB samþykkir

fyrir hvert starfsár. Sérstök úthlutunarnefnd fer síðan með umboð til

fjárveitinga úr styrktarsjóði SKB en skipulagsskrá fyrir hann er

staðfest af dómsmálaráðuneytinu. Einnig ákveður stjórn SKB þak á hverja

úthlutun. Hver félagsmaður í SKB má þó sækja um eins oft og hann telur

þörf á. Þess skal getið að skila þarf inn ítarlegum upplýsingum með

hverri

umsókn í neyðarsjóð svo úthlutunarnefnd fái tekið vel upplýstar og

ígrundaðar ákvarðanir. Auk þessa aðstoðar þjónustufulltrúi SKB hjá

viðskiptabanka félagsins úthlutunarnefnd við skoðun og mat á umsóknum.

Miðasala hefst miðvikudaginn 14. desember






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.