Erlent

Bush bíður með Írak

Hátt settur embættismaður í Hvíta húsinu, sagði í dag að líklega bíði George Bush fram á næsta ár með að tilkynna breytingar á stefnu sinni í Írak. Búist hafði verið við að hann gerði það í þessum mánuði. Bæði ráðgjafanefnd um Írak, og Donald Rumsfeld, fyrrverandi varnarmálaráðherra, ráðlögðu forsetanum að gera gagngerar breytingar hið fyrsta, í Írak.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×