Erlent

Mitt popp

Bandarísk móðir í Oregon fylki hefur verið handtekin fyrir að særa son sinn á andliti og höndum, með stórum búrhníf. Sonurinn er tuttugu og eins árs gamall, en móðirin fjörutíu og níu. Syninum tókst að hringja í neyðarlínuna, og hjálpin barst áður en móðirin gat alveg gengið frá honum.

Ástæða þessarar fjölskyldudeilu var sú að móðirin ætlaði að horfa á kvikmynd um kvöldið og hafði af því tilefni búið til poppkorn fyrir sig. Meðan hún brá sér út úr stofunni, fékk sonurinn sér popp úr skálinni, og var ennþá að tyggja það þegar mamma kom inn aftur. Henni mislíkaði mjög poppkornsát drengsins, eins og sjá má á framansögðu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×