Erlent

Sjálfsmorðsárás í Afganistan

Níu manns létu lífið þegar maður sprengdi sig í loft upp í höfuðstöðvum fylkisstjórans í Helmand héraði, í Afganistan, í dag. Fylkisstjórann sakaði ekki, en fjórir lögreglumenn, tveir hermenn og tveir borgarar fórust, ásamt tilræðismanninum.

Halmand hérað er í hjarta þess sem kallað er Talíbanaland, í Afganistan. Þar fer einnig fram mesta eiturlyfjaframleiðsla í landinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×