Erlent

Heilsu Litvinenkos hrakar enn

Litvinenko á sjúkrahúsi á mánudaginn var.
Litvinenko á sjúkrahúsi á mánudaginn var. MYND/AP

Alexander Litvinenko, hinn fyrrum rússneski njósnari sem var eitrað fyrir í London fyrir þremur vikum síðan, er alvarlega veikur eftir að ástand hans versnaði til muna. Læknar hafa nú útilokað að honum hafi verið byrlað þallíum eða álíku efni. Hann fékk hjartaáfall síðastliðna nótt og er nú haldið sofandi en þrátt fyrir það er ekki talið að miklar skemmdir hafi orðið á hjarta hans.

Litvinenko, sem var harður gagnrýnandi stjórnar Vladimirs Pútins, skrifaði bók árið 2003 en í henni fullyrti hann að það hefði verið rússneska leyniþjónustan sem hefði staðið á bakvið sprengjutilræði í Moskvu í þeim tilgangi að æsa menn til stríðs í Téteníu. Þegar eitrað var fyrir honum var hann að rannsaka morðið í rússnesku blaðakonunni Önnu Politkovskaya, en hún var myrt í byrjun október á þessu ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×