Erlent

Tíbeti kveikti í sér

Frá Tíbet
Frá Tíbet MYND/AP

Tíbeskur maður kveikti í sjálfum sér fyrir utan hótelið sem Hu Jintao, forseti Kína dvelur á, í heimsókn sinni til Indlands. Maðurinn helti yfir sig steinolíu og lagði eld að, meðan hann hrópaði "Frelsið Tíbet." Lögreglumenn slökktu eldinn og fluttu manninn á sjúkrahús.

Kínverjar hertóku Tíbet árið 1950 og hafa síðan kúgað þjóðina, lokað klaustrum og lagt hömlur á trúariðkun. Um 120 þúsund Tíbetar hafa fengið hæli á Indlandi, þeirra á meðal andlegur leiðtogi þeirra Dalaí Lama.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×