Erlent

Buj Dubai gæt orðið hærri en Esjan

Burj Dubai verður álíka hár og Esjan
Burj Dubai verður álíka hár og Esjan

Bygging Burj Dubai við Persaflóann, hæsta skýjakljúfs heims, gengur samkvæmt áætlun. Reistar hafa verið 84 hæðir og byggingin er orðin 302 metra há. Áætlað er að smíðinni ljúki 2009. Ef marka má nýlega grein eftir einn af undirtverktökum við bygginguna gæti Burj Dubai orðið 940 metra hár og allt að 195 hæða. Til samanburðar er Esjan 914 metra há (sjá mynd).

Af samkeppnisástæðum hefur ekki verið gefið upp hversu hár turninn verður að lokum, né hversu margar hæðir. Þó er talið líklegt að hann nái að minnsta kosti 808 metra hæð, ef loftnetin efst á honum eru talin með. Kostnaður við byggingu skýjakljúfsins er áætlaður einn miljarð bandaríkjadala, eða um 70 milljarða íslenskra króna. Arkitektar og hönnuðir byggingarinnar eru Skidmore, Owings, & Merrill, sem hönnuðu einnig Sears Turninn í Chicago and the Frelsisturninn sem á að rísa á lóð tvíburaturnanna á Manhattan í New York.

Hótel Armaní og útisundlaug á 124. hæð
Turninn í smíðum 9. nóvember sl.

Giorgio Armani mun sjá um innanhúshönnun í turninum, enda verða neðstu 37 hæðirnar Armani Hótel, það fyrsta sinar tegundar. Á hæðum 48 til 108 verða 700 íbúðir, sem sagðar eru hafa verið uppseldar átta klukkustundum eftir að þær fóru í sölu. Þar fyrir ofan verða að mestu skrifstofur, nema hvað að á 78. hæð verður útisundlaug og útsýnispallur á 124. hæð. Lyfturnar verða þær hraðskreiðustu í heimi og munu ná 65 km/klst hraða. Dubai turninn mun færa Miðausturlöndum á ný hæðarmet bygginga sem Giza pýramídinn í Egyptalandi missti til Vesturlanda þegar Lincoln dómkirkjan var byggð á Englandi í kringum 1300.

Hæðarmet Dubai manna gæti þá orðið skammlíft því nágrannar þeirra við Persaflóann, Kuwait búar ráðgera turn sem verður kílómetri á hæð, eða 1001 metri. Núverandi hæðarmet á Taipei 101 turninn á Taiwan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×