Erlent

Ástæður árásar í Vestfold enn ókunnar

Lögregla í Vestfold í Noregi vinnur enn að rannsókn á því hvers vegna maður á fertugsaldri myrti þrjá og særði tvo alvarlega í fylkinu á laugardag. Málið hefur vakið mikinn óhug í Noregi en maðurinn myrti föður sinn og kærustu fyrst og stakk svo son sinn, sem var fjórtán ára, til bana og særði tvo aðra alvarlega áður en hann svipti sig lífi.

Lögregla sagði á blaðamannafundi í dag að maðurinn hefði ekki skotið tvö þau fyrstnefndu en vildi ekki gefa upp hvernig þau voru drepin. Lögregla telur sig hafa skýra mynd af atburðarásinni en hún hefur yfirheyrt um 20 manns í tengslum við voðaverkið.

Fyrrverandi eiginkona mannsins og eiginmaður hennar liggja einn á sjúkrahúsi vegna hnífsstungusára og óvíst er hvenær þau verða útskrifuð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×