Matur

Sjávarréttapasta Höllu Margrétar

Halla Margrét
Halla Margrét

Halla Margrét studdist við ítalska uppskrift af Tagliatelle alla Vongole. Vongole er smár skelfiskur sem ekki fæst á Íslandi. Halla Margrét brá þá á það ráð að íslenska uppskriftina og bætti við eftirlætis íslensku sjávarhráefni sínu. Ómissandi er að bera réttinn fram með kældu ítölsku hvítvíni. Buon appetito!

Sjávarréttapasta fyrir fjóra

500-600 g tagliatelle eggjapasta

1 dl ólífuolía

5 hvítlauksgeirar, saxaðir

1/2 laukur, saxaður

1/2 púrrulaukur, sneiddur

400 g smokkfiskur, sneiddur

4 tsk sætt karrý

Safi úr 1 sítrónu

2 1/2 dl hvítvín

handfylli af steinselju, söxuð

200 g humar

500 g rækjur

nýmalaður pipar og salt



Hitið saltvatn í rúmum potti fyrir pastað. Hellið ólífuolíunni á stóra pönnu eða pott og steikið hvítlaukinn, laukinn og púrrulaukinn. Bætið smokkfisknum út í og kryddið með karrýi. Hellið sítrónusafa og hvítvíni út í og látið sjóða í 2-3 mínútur eða þar til sósan þykknar örlítið og slökkvið á hellunni.

Sjóðið pastað samkvæmt leiðbeiningum á pakkningu. Bætið steinselju, humri og rækjum út á pönnuna og kryddið með salti og pipar. Sigtið vatnið frá pastanu og bætið því út á pönnunna og blandið vel saman. Setjið á fjóra diska og skreytið með steinselju.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.