Lífið

„Heita sætið“ hefur aldrei verið heitara

Egill Ólafsson mun verma heita sætið á Q bar við Ingólfsstræti í kvöld.
Egill Ólafsson mun verma heita sætið á Q bar við Ingólfsstræti í kvöld.

Djassgeggjunin á Q-bar heldur áfram í kvöld og nú er röðin komin að Agli Ólafssyni að verma heita sætið. Egill er landsþekktur tónlistarmaður, leikari og skemmtikraftur sem vart þarf að kynna. Hann mun syngja eldheita slagara og kraftmikinn djass við undirleik þeirra Gunnars Hrafnssonar bassaleikara, Ásgeirs Óskarssonar slagverksleikara og Björns Thoroddsen gítarleikara.

Tónleikaröðin „Heita sætið" hefur verið vel sóttur viðburður undanfarna fimmtudaga. Þá hafa djassdívurnar Andrea Gylfadóttir, Kristjana Stefánsdóttir og Margrét Sigurðardóttir nú þegar komið fram og haldið uppi sannkallaðri Harlem djassstemningu úr „Heita sætinu". Óhætt er að fullyrða að Egill Ólafsson verði enginn eftirbátur þeirra og haldi uppi stemningu sem seint gleymist.

Tónleikarnir hefjast kl. 22 og aðgangur er ókeypis. Q-bar er við Ingólfsstræti 3 í Reykjavík.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.