Lífið

Moshi Moshi á Airwaves

Tilly and the Wall
Tilly and the Wall
Líkt og í fyrra mun breska plötuútgáfan Moshi Moshi vera með sérstakt Moshi Moshi kvöld á Iceland Airwaves hátíðinni í ár. Samstarf Airwaves og Moshi Moshi teygir sig nokkur ár aftur í tímann. Í kjölfar vel heppnaðra tónleika bresku raf-poppsveitarinnar Hot Chip, sem þá var nýbúin að gefa út sína fyrstu breiðskífu hjá Moshi Moshi, á Airwaves 2004 ákváðu forsvarsmenn hátíðarinnar að láta útgáfunni í té heilt kvöld á hátíðinni í fyrra. Það er skemmst frá því að segja að kvöldið tókst með eindæmum vel og vöktu sveitir á borð við Metronomy (US), Au Revoir Simone (US), Architecture in Helsinki (AUS) og Stórsveit Nix Noltes (sem gefur reyndar ekki út hjá Moshi Moshi) verðskuldaða athygli innanlands sem utan.

Það var því á kveðið að endurtaka leikinn í ár. Á kvöldi Moshi Moshi á Iceland Airwaves 2006 koma fram Tilly and the Wall (UK) sem fengið hefur mikið lof gagnrýnenda fyrir breiðskífuna Wild Like Children sem kom út í byrjun árs, Hot Club de Paris (UK) sem hefur farið mikinn í tónleikahaldi í London og nágrenni undanfarið og margir bíða spenntir eftir fyrstu breiðskífu þeirra 'Winners' sem er væntanleg í september, indí-hardcore-reif-rokkararnir í Klaxons (UK), popp dúóið Mates of State (US) og Semifanlists (UK) sem fyrir skemmstu gaf út sína fyrstu breiðskífu samnefnda sveitinni sem líkt hefur verið við verk Wayne Coyne, Fleedod Mac og Arcade Fire. Líklegt er að 1-2 innlendir flytjendur muni síðar bætast við dagskrá kvöldsins.

Framkvæmd Iceland Airwaves er í höndum Hr. Örlygs í samvinnu við Icelandair og Reykjavíkurborg.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.