Lífið

Forhlustun á fyrstu plötu Dr. Mister & Mr. Handsome

Tónlist.is ætlar að bjóða Íslendingum öllum að hlusta á fyrstu plötu Dr. Mister & Mr. Handsome áður en hún kemur í verslanir nk. fimmtudag. Dirty Slutty Hooker Money er frumburður einnar ferskustu hljómsveitar sem komið hefur fram á sjónarsvið íslenska tónlistarmarkaðarins í mörg ár. Engin hljómsveit á Íslandi hefur áður komið 4 lögum í útvarpsspilun með jafn góðum árangri, áður en plata er gefin út, en öll lögin fjögur, Kokaloca, Is it Love?, Boogie Woogie Sensation og Was that all it was? eru á plötunni.

Dr. Mister & Mr. Handsome eru, Dr. Mister: Ívar Örn Kolbeinsson, Mr. Handsome: Guðni Rúnar Gunnarsson og Snake: Egill Tómasson. Á plötunni njóta þeir fullþingis margra góðra tónlistarmanna, en má þar meðal annars nefna, Svölu Björgvinsdóttur og Krumma og Þröst úr Mínus..

Dr. Mister & Mr. Handsome hafa gert ótrúlega hluti það sem af er ári en 2 lög með þeim hafa toppað eina smáskífulista Íslands, Netlistann á Tónlist.is. Þrjú lög hafa toppað vinsældarlista X-ins 977 og eitt lag hefur toppað X-dominoslista Xfm, tvö lög hafa einnig komist á topp 10 á Íslenska listanum á FM957. Hljómsveitin hefur einnig að vera að gera það gott í hringitónabransanum en 3 hringitónar hafa verið gríðarlega vinsælir á ogVodafone síðunni en sveitin á 2 af 5 vinsælustu hringitónum landsins í dag.

Með plötunni fylgir listi yfir öll lögin af plötunni sem hægt er að nálgast sem hringitóna í þar til gerða GSM síma, einnig er hægt að ná í ljósmyndir af plötunni sem veggfóður í síma.

Smelltu hér til að hlusta á plötuna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.