Lífið

Reykjavík! með nýja breiðskífu

Plötuumslag nýju breiðskífunnar

Hljómsveitin Reykjavík!, sem er að mestu ættuð frá Vestfjörðum, gerði útgáfusamning við 12 Tóna ekki alls fyrir löngu og nú er fyrsta plata sveitarinnar loksins komin út en hennar hefur verðið beðið með mikilli eftirvæntingu. Platan sem ber heitið 'Glacial landscapes, religion, oppression and alcohol' var tekin upp í Gróðurhúsinu í samstarfi við hinn magnaða Valgeir Sigurðsson sem hefur m.a. unnið með Björk og Bonnie Prince Billy.

Hljómsveitin Reykjavík! hefur vakið talsverða athygli í þau tæpu tvö ár sem hún hefur starfað, enda þykir sprengikraftur hennar á sviði magnaður (svo mjög að sumum þykir nóg um). Á stuttri starfsævi sveitarinnar hefur hún afrekað ýmislegt, m.a. að koma fram við góðan róm á Innipúkanum og tvennum Aldrei fór ég suður og Airwaves-hátíðum, farið í afdrifaríka ferð til Lundúna og Brighton á vegum hinnar þarlendu Xfm útvarpsstöðvar og vefritsins drownedinsound.com og svo eignaðist líka söngvarinn Bóas fallegan pilt, Dalí, ásamt henni Ingu sinni en hann er sá eini úr Reykjavík! sem hefur vakið athygli fyrir það.

Tónlist Reykjavíkur! er kraftmikil, oftast melódísk, stundum óreiðukennd, einstaka sinnum afar falleg en alltaf skemmtleg. Nýbylgjuskotið rokk í anda Sonic Youth, Fugazi, Boston og SH Draums er eitthvað sem nær að lýsa þeirri breidd sem Reykjavík! býr yfir.

Útgáfutónleikar Reykjavíkur! verða haldnir seinna í sumar.

“Reykjavík kom mér mest á óvart, það er langt síðan ég sá hljómsveit sem hefur jafn gaman að því að vera hljómsveit, ótrúlega vel æfðir og þetta nýja stuff náði einhvernvegin að koma mér í svo góðan fíling að ég gat ekki hætt að tala vel um þá og hugsa um lögin.  Takk fyrir mig Reykjavík, get ekki beðið eftir nýju plötunni.” (Mugison á http://www.mugison.is, eftir Aldrei fór ég suður 2006)



 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.