Viðskipti erlent

Bauð hæst í mat með Buffett

Warren Buffett ásamt Bill Gates, stofnanda Microsoft.
Warren Buffett ásamt Bill Gates, stofnanda Microsoft. Mynd/AFP

Kvöldverðarboð með bandaríska auðkýfingnum Warren Buffett fór á 620.100 Bandaríkjadali, jafnvirði 47,6 milljóna íslenskra króna, á uppboðsvefnum e-bay í gær. Þetta er hæsta boð sem einstaklingur hefur greitt fyrir að snæða með „vitringnum frá Omaha", sem á dögunum ákvað að láta 85 prósent af auðæfum sínum renna til góðgerðarmála.

Sá sem átti hæsta boði í kvöldverðinn heitir Yongpin Duan og er 45 ára kaupsýslumaður frá Kína sem fluttist með fjölskyldu sína til frá Kaliforníu í Bandaríkjunum fyrir fimm árum. Duan rak raftækjafyrirtæki í Kína en ákvað að flytjast búferlum eftir að hann las eina af bókum Buffetts.

Baráttan um kvöldverðinn var sérstaklega hörð á endasprettinum en þremur mínútum fyrir lokun uppboðsins klukkan 10 í gærkvöldi snarhækkaði boðið þegar kaupsýslumaður frá Taívan skellti sér í baráttuna. Fimm manns buðu í kvöldmatinn og rennur fjárhæðin til góðgerðasamtaka á vegum kirkjunnar.

Duan fær að bjóða sjö vinum sínum til kvöldverðarins sem verður á steikhúsi í New York í Bandaríkjunum og munu þeir fá tækifæri til að ræða einslega við Buffett um viðskipti og sýn hans á viðskiptalífinu. Það eina sem bannað er að ræða um eru kaup og sala Berkshire Hathaways, fjárfestingafyrirtækis Buffetts, á fyrirtækjum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×