Lífið

Hjálmar spila í 12 tónum

Hjálmar leika fyrir gesti og gangandi í verslun 12 Tóna að Skólavörustíg 15 næstkomandi föstudag. Tónleikarnir hefjast klukkan 17:00 eins og lög gera ráð fyrir. Léttar veitingar verða á boðstólnum og heitt í húsinu.

Hjálmar eru einnig að leggja í víking en hljómsveitin spila í kóngsins Kaupmannahöfn í næstu viku, þann 5. júlí, á skemmtistaðnum Loppen en fyrr um dagin leikur sveitin í 12 Tónum að Fiolstræde 7. Þar verða að sjálfsögðu léttar veitingar í boði en tónleikarnir hefjast klukkan 17:30.

Ekki missa af tónleikum með Hjálmum því þeim fylgir góða skapið og núna eru Hjálmarnir líka með nýtt efni í pokahorninu og í meiriháttar formi.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.