Viðskipti erlent

Ekki búist við breytingum á olíuframleiðslu

SINCOR olíuvinnslustöðin í nágrenni Caracas í Venesúela.
SINCOR olíuvinnslustöðin í nágrenni Caracas í Venesúela. Mynd/AFP

Ekki er búist við breytingum á olíuframleiðslu á fundi Opec-ríkjanna, samtökum olíuframleiðsluríkja, sem haldinn verður í Caracas í Venesúela á fimmtudag. Þetta er þvert á óskir olíumálaráðherra Venesúela, sem hefur óskað eftir því að olíuframleiðsla verði minnkuð.

Sérfræðinga í olíumálum segja að þrátt fyrir að olíubirgðir hafi aukist þá vilji samtökin ekki verða sökuð um að þrýsta olíuverði enn frekar upp. Verð á olíu hefur í nokkrar vikur staðið nálægt sögulegu hámarki.

Samtökin hafa haldið olíuframleiðslu sinni óbreyttri frá miðju síðasta ári til að koma í veg fyrir enn frekari verðhækkanir m.a. vegna aukinnar spennu á milli Bandaríkjanna og Íran og árása skæruliða á olíuvinnslustöðvar í Nígeríu.

Þrátt fyrir þetta hefur Rafael Ramirez, olíumálaráðherra Venesúela, krafist þess að olíuframleiðsla samtakanna, sem nemur 28 milljónum tunna á degi hverjum, verði minnkuð um 500.000 til 1 milljón tunna á dag vegna aukinna olíubirgða.

Á meðal olíuframleiðsluríkja í Opec-samtökunum eru Sádi-Arabía, Írak, Íran og Nígería en aðildarríki samtakanna framleiða þriðjung allrar olíu í heiminum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×