Lífið

Hlustunar-útgáfupartý á Grand Rokk

Reykjavík! og 12 Tónar bjóða í hlustunar-útgáfupartý Reykjavíkur! á Grand Rokk og hörku tónleika meððí!



Hljómsveitin Reykjavík! hefur gert útgáfusamning við 12 Tóna. Fyrsta plata sveitarinnar kemur í verslanir í byrjun júní og ber hún nafnið 'Glacial landscapes, religion, oppression and alcohol'. Platan var tekin upp í Gróðurhúsinu í samstarfi við hinn magnaða Valgeir Sigurðsson sem hefur m.a. unnið með Björk og Bonnie Prince Billy.

Í tilefni þess að platan er tilbúin og á leið í framleiðslu þykir hljómaveitinni við hæfi að bjóða í hlustunar-útgáfupartý á Grand Rokk klukkan 21:00 næstkomandi föstudag. Boðið verður upp á snakk og léttar veigar.



Klukkan 23:00 verður byrjað að selja inn en Reykjavík! mun sprengja hljóðmúrinn á sviði Grand Rokk þegar líða ftekur á nóttina. Ásamt Reykjavík! leika Hairdoctor og Lack of Talent.



Hljómsveitin Reykjavík! hefur vakið talsverða athygli í þau tæpu tvö ár sem hún hefur starfað, enda þykir sprengikraftur hennar á sviði magnaður (svo mjög að sumum þykir nóg um). Á stuttri starfsævi sveitarinnar hefur hún afrekað ýmislegt, m.a. að koma fram við góðan róm á Innipúkanum og tvennum Aldrei fór ég suður og Airwaves-hátíðum, afdrifaríka ferð til Lundúna og Brighton á vegum hinnar þarlendu Xfm útvarpsstöðvar og vefritsins drownedinsound.com og svo eignaðist líka söngvarinn Bóas fallegan pilt, Dalí, ásamt henni Ingu sinni en hann er sá einni úr Reykjavík! sem hefur vakið athygli fyrir það.



"Reykjavík kom mér mest á óvart, það er langt síðan ég sá hljómsveit sem hefur jafn gaman að því að vera hljómsveit, ótrúlega vel æfðir og þetta nýja stuff náði einhvernvegin að koma mér í svo góðan fíling að ég gat ekki hætt að tala vel um þá og hugsa um lögin. Takk fyrir mig Reykjavík, get ekki beðið eftir nýju plötunni." (Mugison á www.mugison.com, eftir Aldrei fór ég suður 2006)



Útgáfutónleikar Reykjavíkur! verða haldnir seinna í sumar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.