Lífið

NYLON á toppi íslenska listans

Lagið Losing a Friend með Nylon er komið á topp Íslenska listans.

Listinn er unnin af útvarpstöðinni FM957 og endurspeglar smekk

hlustenda hverju sinni. Laginu hefur verið gríðarlega vel tekið af

íslenskum hlustendum eins og árangur lagsins á listanum gefur til

kynna. Innan Nylon flokksins er mikil hamingja með árangurinn. "Við

erum rosalega glaðar og þakklátar að laginu er vel tekið. Það er alls

ekki sjálfgefið að íslenskir hlustendur fylgi tónlistarfólki þegar

það söðlar um. Þetta er fyrsta lagið sem við sendum frá okkur á ensku

Lagið Losing a Friend með Nylon er komið á topp Íslenska listans.

Listinn er unnin af útvarpstöðinni FM957 og endurspeglar smekk

hlustenda hverju sinni. Laginu hefur verið gríðarlega vel tekið af

íslenskum hlustendum eins og árangur lagsins á listanum gefur til

kynna.

Þessi viðbrögð fara algjörlega fram úr björtustu vonum" sagði Alma

Guðmundsdóttir. " Það var rosalega gaman að standa á sviðinu á Wembley í gærkvöldi og geta sagt við 10.000 áhorfendur að lagið væri

vinsælasta lagið á Íslandi. Það var ótrúleg tilfinning og því fylgdi

gæsahúð"

LAGIÐ FÁANLEGT Á TÓNLIST.IS

Losing a Friend er nú komið á tónlist.is og hægt að kaupa eintak af

laginu og hlusta á það í streymi. Þetta er í fyrsta sinn sem lagið er

aðgengilegt en lagið verður gefið út í Bretlandi í næsta mánuði og fá

því Íslendingar forskot á aðra. Farðu inná tónlist.is og tryggðu þér

lagið Losing a Friend með Nylon fyrir aðeins 99 kr.

Þeir Íslendingar sem hafa aðgang að sjónvarpssendingum Sky Digital

geta séð að lagið er komið í mikla spilun á breskum sjónvarpsstöðvum

og nú fylgja útvarpsstöðvar væntanlega í kjölfarið.

TÓNLEIKAFERÐ MEÐ WESTLIFE LOKIÐ

Á föstudagskvöldið sl. lauk tónleikaferðalagi Nylon með Westlife um

Bretland. Ferðalagið hefur tekið 6 vikur og stelpurnar slá ekki slöku

við því á morgun hefst 3ja vikna tónleikaferð með Girls Aloud,

einu vinsælasta stúlknabandi Bretlands. Munu stúlkurnar spila aftur á Wembley Arena eins og þær gerðu með Westlife og fara þeir tónleikar fram þann 3. júní nk.

Einnig má fylgjast með stelpunum á www.minnsirkus.is/nylon en þar blogga þær um ferð sína með Girls Aloud






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.