Lífið

Frumsýning í Íslensku óperunni

Söngleikurinn Litla hryllingsbúðin hefur heldur betur slegið í gegn hjá Leikfélagi Akureyrar að undanförnu. Sýningin hefur hlotið einróma lof gagnrýnenda og metaðsókn. Einnig hefur tónlistin með lögum úr sýningunni hljómað á öldum ljósvakans og ættu flestir að vera farnir að þekkja smelli eins og „Gemmér" í flutningi Andreu Gylfadóttur ásamt fleiri lögum úr sýningunni.

Sýningum á Akureyri lauk fyrir síðustu helgi og í kjölfarið var sviðsmyndinni og öllu tilheyrandi pakkað saman og flutt suður yfir heiðar og komið fyrir í Íslensku óperunni við Ingólfsstræti. Hápunktur flutninganna var þegar að plantan, Auður II kom í hús á miðvikudaginn. Sviðsmynd sýningarinnar var hönnuð með það í huga að auðvelt væri að koma henni fyrir bæði á sviðinu í samkomuhúsinu á Akureyri og sviði Óperunnar. Litla hryllingsbúðin var síðast sýnd í Íslensku óperunni árið 1984 og muna eflaust margir eftir Ladda sem sló í gegn í hlutverki tannlæknisins ógnvænlega. Það eru sömu leikarar sem fara með hlutverkin í sýningunni fyrir norðan og sunnan en sýningin opnar í Óperunni laugardaginn 13. maí og er áætlað að sýna út júní. Sýningin er sett upp af Leikfélagi Akureyrar í samstarfi við Íslensku óperuna en það er Landsvirkjun sem kemur að kostun sýningarinnar í Óperunni. Aðrir samstarfsaðilar eru Norðurorka, KEA Hótel, Olís og Flugfélag Íslands.

Litla hryllingsbúðin segir frá erkilúðanum Baldri sem eyðir fábrotnum dögunum í blómabúðinni hans Markúsar. Hann lætur sig dreyma um ástir Auðar sem vinnur með honum í búðinni. Dag einn, rétt fyrir sólsetur uppgötvar Baldur undarlega plöntu sem hann nefnir Auði II í höfuðið á sinni heittelskuðu. Áður en langt um líður kemur í ljós að plantan hefur undarlega eiginleika og gríðalega matarlyst. Og hún vex og vex. Plantan vekur óskipta athygli og viðskiptin blómstra sem aldrei fyrr. Inn í söguna blandast svo kærasti Auðar, tannlæknir með kvalalosta, og atburðarrásin tekur óvænta stefnu.

Höfundar: Howard Ashman og Alan Menken

Byggt á kvikmynd Roger Corman og handriti Charles Griffith

Leikstjórn: Magnús Geir Þórðarson

Leikmynd og búningar: Halla Gunnarsdóttir

Listræn ráðgjöf: Snorri Freyr Hilmarsson

Tónlistarstjórn: Kristján Edelstein

Lýsing: Björn Bergsteinn Guðmundsson

Danshöfundur: Ástrós Gunnarsdóttir

Leikarar: Andrea Gylfadóttir, Vigdís Hrefna Pálsdóttir, Guðjón Davíð Karlsson, Jóhannes Haukur Jóhannesson, Þráinn Karlsson, Álfrún Helga Örnólfsdótir, Esther Talía Casey, Ardís Ólöf Víkingsdóttir og Guðjón Þorsteinn Pálmarsson.

Upphaflega sviðsett af WPA leikhúsinu (framleiðandi: Kyle, Renick)

Sýningin er sett upp af Leikfélagi Akureyrar í samstarfi við Íslensku óperuna.

Allar nánari upplýsingar um sýningar á Litlu hryllingsbúðinni í Íslensku óperunni á www.opera.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.