Lífið

Nýr og stærri vefur

Sjónvarpstímarit Þorsteins J. Þetta líf, Þetta líf hefur verið stækkað. Það var stofnað í janúar 2005 á slóðinni www.thorsteinnj.is, í þeim tilgangi að stækka sjóndeildarhringinn í fjölmiðlum, sýna efni sem ekki er annarstaðar, um listina og lífið, í stóru samhengi. Heimsóknir hafa verið frá tveimur á dag, uppí sjö hundruð, fer eftir efninu sem er inni hverju sinni. Vefurinn var tilnefndur til Prix Europa verðlaunanna í Berlín á haustmánuðum.

Þetta líf, Þetta líf er öllum opið en áskrifendur njóta forréttinda umfram aðra notendur. Nú er markmiðið að fjölga áskrifendum ennfrekar, jafnframt því sem þjónusta við þá er aukin. Þeir fá sérstaka tilkynningu um allt nýtt efni og geta aukinheldur horft á allt efnið sem birtst hefur í tímaritinu til þessa. Það eru engar auglýsingar eða styrktaraðilar sem koma að útgáfunni, hún er aðeins rekin fyrir áskriftartekjur.

Meðal annarra nýjunga í tímaritinu má nefna að nú er hægt að horfa á sjónvarpsefnið í fullri skjástærð og auk þess er hægt að sækja sérstakar Ipod útgáfur í tímaritið, sem smellpassa í sjónvarpsIpoda landsmanna.

Forsíðuefnið þessa dagana er viðtal við írska ljósmyndarann John Minihan, sem tók frábærar portret myndir af írska skáldinu og einfaranum Samuel Beckett. Ennfremur er birtur fyrsti hluti af fjórum, í þáttaröð sem Þorsteinn kallar: Everest í Reykjavík. Hann var í versluninni Útilífi í Smáralind nóttina sem Haraldur Örn Ólafsson komst uppá Everesttind fyrir fjórum árum og tók viðtöl við þá sem sátu og fylgdust með framvindu mála.

Það er Samúel Jónasson í Caoz sem sá um útlitsbreytingar á tímaritinu og Pétur Grétarsson tónskáld leggur til alla tónlist.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.