Lífið

Aðjúnktinn mætir alþingismanninum

Í næstu viðureign í spurningaþættinum Meistaranum sem sýndur verður á Stöð2 í kvöld, fimmtudagskvöldið 12. janúar mætast þeir Sigurður Kári Kristjánsson alþingismaður og Snorri Sigurðsson aðjúnkt í líffræði við Kennaraháskóla Íslands. Útsending hefst klukkan 20:00

Í fyrstu viðureigninni lagði Inga Þóra Ingvadóttir sagnfræðingur Þorvald

Þorvaldsson smið. Í öðrum þættinum, lagði blaðamaðurinn og fyrrum Gettu betur-sigurvegarinn Steinþór H. Arnsteinsson framhaldsskólakennarann Erling Hansson eftir æsispennandi og hnífjafna viðureign.

Meistarinn er nýr alíslenskur spurningaþáttur sem hóf göngu sína annan í

jólum og hefur farið geysivel af stað. Þátturinn hefur þegar vakið mikið

umtal í fjölmiðlum enda eiga eftir að etja þar kappi margir af helstu

spurningahaukum þjóðarinnar og verður því úr skorið hver sé í raun og reynd Íslandsmeistari í spurningakeppnum, hinn eini og sanni Meistari.

Nánar um keppendur í þriðja þætti:

SNORRI SIGURÐSSON er með meistaragráðu í fornlíffræði frá University of Bristol. Hann er 24 ára gamall og segist enga reynslu hafa af spurningakeppnum. Áhugamál hans eru tónlist, ferðalög og kórsöngur en sérsviðið í vitneskju er, eins og við mátti búast líffræðin.

SIGURÐUR KÁRI KRISTJÁNSSON er fjórði þingmaður Sjálfstæðismanna í Reykjavíkurkjördæmi norður. Hann er 32 ára gamall og lögfræðingur að mennt. Sigurður segist tvisvar sinnum hafa tekið þátt í spurningakeppnum; einu sinni í grunnskóla, fyrir hönd Hólabrekkuskóla, og einu sinni í framhalsskóla í Gettu betur fyrir hönd Verzlunarskóla Íslands. Í báðum keppnum hafnaði hann í 2. sæti. Áhugamál Sigurðar Kára eru að eigin sögn íþróttir, tónlist og stjórnmál og sérsvið í vitneskju íþróttir, landafræði, saga, tónlist og stjórnmál.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.