Bíó og sjónvarp

Ólíkindatólin í akademíunni

Kvikmynd Almodóvars þykir líkleg til afreka í febrúar sem og aðalleikkonan Penelope Cruz.
Kvikmynd Almodóvars þykir líkleg til afreka í febrúar sem og aðalleikkonan Penelope Cruz.

Þó að enn séu tæpir tveir mánuðir þar til tilkynnt verður hverjir eru tilnefndir til Óskarsverðlaunanna eru fjölmiðlungar þegar farnir að spá í spilin fyrir stóra daginn.

Kvikmyndirnar í ár hafa verið óvenju ópólitískar ef miðað er við síðasta ár þegar myndir um kynþáttahatur, samkynhneigð, spillingu lyfjafyrirtækja og nornaveiðar McCarthy-tímabilsins að ógleymdri olíumyndinni Syriana réðu ríkjum í kvikmyndahúsunum.

Miðað við þær kvikmyndir sem hafa verið frumsýndar þykir mörgum ráðlegt að veðja á að sjálfur Martin Scorsese hljóti loks Óskarinn í fyrsta skipti fyrir myndina The Departed, verðlaun sem aðdáendur hans yrðu sáttir með.

Eastwood eða Scorsese?
Skyldi það gerast núna? Akademían hefur sniðgengið kvikmyndir Scorsese en kannski er komið að honum í ár.

Á vefsíðu CNN birtust á dögunum vangaveltur um hvaða myndir þættu líklegastar til afreka þann 27. febrúar þegar stjörnuhersingin mætir í Kodak-höllina í Los Angeles. Þar ber hæst The Departed og stríðsmyndina Flags of our Fathers eftir Clint Eastwood, en myndin var að hluta til tekin upp í Sandvík á Reykjanesi.

Blaðamaður CNN leyfir sér hins vegar að slá ákveðna varnagla og bendir réttilega á að kvikmynd Eastwoods hafi ekki gengið neitt sérstaklega vel í miðasölu, hún hafi verið frumsýnd á röngum tíma og að hinar ofbeldisfullu og blóðugu stríðssenur minni um of á stríðið í Írak.

Tekið skal hins vegar fram að Letters from Iwo Jima, sem Eastwood gerði um sama efni en frá sjónarhóli Japana, gæti vakið áhuga á Flags of our Fathers en hún verður frumsýnd rétt fyrir opnun umslaganna með tilefningunum 24. janúar.

Kvikmyndaséfræðingar eru heldur ekkert of bjartsýnir með að ofbeldið í lok The Departed renni ljúflega ofan í Akademíu-meðlimi en þeir sem hafa séð hana muna eflaust eftir þeirri slátrun sem átti sér stað síðasta korterið eða svo. Hitt gæti svo orðið Scorsese til framdráttar að myndin gekk ákaflega vel í miðasölu og meðlimir Akademíunnar hljóti að hafa það í huga að leikstjóranum knáa hefur enn ekki tekist að fara heim með Óskar frænda í farteskinu.

Bjartsýni litlu myndanna
Leikstjórinn aldni gæti átt sína möguleika en dræm aðsókn hefur dregið úr vonum kvikmyndarinnar Flags of our Fathers.

BBC fréttavefurinn býst alveg eins við að spænski leikstjórinn Pedro Almodóvar setji strik í reikninginn hjá Scorsese því gagnrýnendur hafa hampað kvikmynd hans Volver í hástert.

Penelope Cruz þykir einnig líkleg til afreka sem besta leikkonan þótt breski leikarinn Michael Caine sé á allt öðru máli. „Akademían á bara að setja Óskarinn í póst og senda Helen Mirren," sagði Caine við blaðamenn á dögunum. „Þá gætu menn verið lausir við allt þetta umstang og stúss," bætti leikarinn við en Mirren þykir fara á kostum í hlutverki Elísabetar II í kvikmyndinni The Queen.

Little Miss Sunshine eftir Jonathan Dayton og Valerie Faris er einnig spáð mikilli velgengni af blaðamönnum BBC sem og United 93 og The Last King of Scotland en í þeirri síðastnefndu er Forest Whitaker sagður fara á kostum sem einræðisherrann Idi Amin. „Amin er leiðin til Óskars," skrifaði kvikmyndarýnir dagblaðs í Fíladelfíu.

Þrátt fyrir þessar bollaleggingar skyldi þeim hins vegar tekið með fyrirvara. Samtök gagnrýnenda í stóru borgum Bandaríkjanna veita hvert um annað þvert verðlaun um þessar mundir fyrir vel unnin störf á árinu sem er að líða en þau gætu haft mikil áhrif á Akademíuna og útkomuna. Ekki þarf heldur annað en að horfa til ársins í fyrra þegar flestir höfðu veðjað á Brokeback Mountain, Munich eða Good Night and Good Luck en „litla" myndin Crash fór með sigur af hólmi, sem kom öllum að óvörum nema Akademíunni.

The Departed fékk mjög góðar viðtökur áhorfenda en Akademían er vönd að sinni virðingu og gæti þótt ofbeldið of yfirgengilegt.


.
Idi „Óskar“ Amin. Forest Whitaker þykir fara á kostum í hlutverki einræðisherrans sem krýndi sjálfan sig konung Skotlands á sínum tíma.


.
Helen Mirren þykir sú eina sem á að geta gengið að tilnefningunni vísri.


.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×