Tónlist

Tónleikaferð lokið

Félagarnir Bono og Vedder sungu lagið Rockin´in the Free World á Hawaii.
Félagarnir Bono og Vedder sungu lagið Rockin´in the Free World á Hawaii.

Hljómsveitin U2 lauk nýverið Vertigo-tónleikaferðalagi sínu um heiminn með vel heppnuðum tónleikum á Hawaii. Sérstakir gestir sveitarinnar voru Billy Joe Armstrong úr Green Day og rokksveitin Pearl Jam.

Armstrong söng lagið The Saints Are Coming sem er á nýrri safnplötu U2 og síðar um kvöldið stigu Eddie Vedder og Mike McCready á svið til að flytja með U2 lag Neil Young, Rockin" in the Free World.

Á meðal annarra laga sem U2 flutti voru Angel of Harlem, Sun-day Bloody Sunday, Miss Sarajevo, One og lokalagið All I Want Is You.

Tónleikaferð U2 hefur staðið yfir í tuttugu mánuði. Fjölmargir hafa hitað upp fyrir sveitina eða sungið með henni, meðal annars The Killers, The Arcade Fire, Interpol, Mary J Blige og Patti Smith.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.