Tónlist

Barist gegn nauðgunum

Pétur Ben spilar á styrktartónleikum Jafningjafræðslunnar.
Pétur Ben spilar á styrktartónleikum Jafningjafræðslunnar. MYND/Hrönn

KK, Pétur Ben, Reykjavík! og Orig-inal Melody koma fram á tónleikum í kvöld sem er lokahnykkur átaksins „Nóvember gegn nauðgunum" sem Jafningjafræðsla Hins hússins hefur staðið fyrir.

Ösp Árnadóttir hjá Jafningjafræðslunni segir að átakið hafi gengið vonum framar. Sjö skólar hafa verið heimsóttir og hefur fræðslan ýmsist verið á sal eða inni í lífsleikni- eða félagsfræðitímum. „Fólk hefur svolítið skekkta mynd af því hvernig þetta er. Það heldur að flestar nauðganir séu þannig að það sé setið fyrir stelpum og ráðist á þær. Það er bara í 10% tilfella." Hún bætir því við að staðreyndin sé sú að í 70% tilfella þekkja fórnarlömb nauðgunarinnar þann sem fremur glæpinn.

Að sögn Aspar skellir fólk oft skuldinni á stelpurnar sjálfar sem lenda í nauðguninni og kenna m.a. klæðaburði um hvernig fór fyrir þeim, að þær hafi kallað nauðgunina yfir sig. „Það voru líka margir að segja reynslusögur af einhverjum frænda eða vinum sem stelpa hefði sagt að hefði nauðgað sér. Það er eins og það sé algengt en samt er það bara í 1,5% tilfella þannig. Það er eins oft og fólk sem lýgur um að hafa lent í bílslysi til að fá út úr tryggingunum. Samt er það aldrei dregið í efa."

Styrktartónleikarnir fara fram í Ráðhúsi Reykjavíkur og standa þeir yfir frá 20 til 22. Aðgangseyrir er enginn en fólk getur lagt frjáls framlög í kassa til styrktar Stígamótum.

Ösp segir að fólk hafi svolítið skekkta mynd af fórnarlömbum nauðgana.MYND/Hrönn


.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.