Vill hjálpa fátækum og draga úr áhrifum Bandaríkjanna 28. nóvember 2006 06:15 Rafael Correa og eiginkona hans fagna sigri Correa hafði fengið tvisvar sinnum fleiri atkvæði en andstæðingur hans þegar helmingur atkvæða hafði verið talinn. MYND/AP
Rafael Correa, 43 ára vinstrisinnaður hagfræðingur, sigraði með glæsibrag í forsetakosningunum í Ekvador á sunnudaginn. Þegar helmingur atkvæða hafði verið talinn í gær hafði Correa fengið tvisvar sinnum fleiri atkvæði en andstæðingur hans, auðjöfurinn Alvaro Noboa. Ekvador bætist því í hóp þeirra Suður-Ameríkuríkja þar sem vinstrimaður er við völd. Fyrir eru vinstrimenn við stjórnartauminn í Bólivíu, Brasilíu, Argentínu, Chile og Venesúela. Þeim Correa og Hugo Chavez, forseta Venesúela, er vel til vina, en Chavez hefur verið einn hvassyrtasti andstæðingur Bandaríkjanna. Correa hóf kosningabaráttu sína með því að líkja sér við Chavez, en hætti því þegar hann sá að það kæmi ekki vel út í skoðanakönnunum. Nú eru þær afstaðnar og Correa segist vonast til þess að geta gert svipaða hluti og Chavez. Correa hefur lofað því að bæta mjög stöðu fátækra í Ekvador, landi þar sem fátækt er mikil. Hann vill einnig breyta stjórnarskrá landsins til þess að draga úr valdi gömlu flokkanna og takmarka starfsemi Bandaríkjanna í Ekvador. Andstæðingur Correas í forsetakjörinu, Noboa, vildi þó ekki viðurkenna ósigur sinn í gær og sakaði Correa um kosningasvindl.
Erlent Mest lesið Gekk nakinn í veg fyrir bíla á Suðurlandsvegi Innlent Trump útilokar að bjóða sig fram aftur Erlent Jafnaðarmenn báru nauman sigur úr býtum Erlent Ánægður með frumvarp sjálfstæðismanna Innlent Fannst 73 árum eftir að hafa verið rænt Erlent Tveggja bíla árekstur á Suðurlandsvegi Innlent Óásættanlegt að vísa NPA-vandanum alfarið til sveitarfélaga Innlent Bjarni fundaði með Guterres Innlent Fjölskylda flugmanns Icelandair vill að lögregla rannsaki andlát hans Innlent Sæðisgjafar tilkynni það fjölskyldu sinni svo ekki verði „slys“ Innlent Fleiri fréttir Jafnaðarmenn báru nauman sigur úr býtum Trump útilokar að bjóða sig fram aftur Marxisti kjörinn forseti Srí Lanka Segir að Hezbollah muni skilja skilaboðin Fimmtíu og einn látinn eftir sprengingu í námu Fannst 73 árum eftir að hafa verið rænt Jörðin fær tímabundið annað tungl Varpa sprengjum á fjölbýlishús í Karkív Tjóðraði móður sína við stól til að drepa eiginmann sinn Skiptast á eldflaugum í massavís Konur og börn meðal látinna þegar Hezbollah-leiðtoga var ráðinn bani Ríkisstjórn mynduð í Frakklandi Skorar á Trump í aðrar kappræður Diddy á sjálfsvígsvakt Senda svifsprengjur fyrir F-16 Repúblikanar áhyggjufullir vegna „svarta nasistans“ Óþekkt tónverk eftir Mozart fannst Fjölmiðlafólki vísað úr salnum við myndbirtingu: „Þetta er ósæmilegt og átakanlegt myndefni“ Önnur vopnageymsla í ljósum logum í Rússlandi Stjörnublaðamaður í straff vegna sambands við Kennedy Vörpuðu líkum fram af húsþaki á Vesturbakkanum Felldu marga leiðtoga Hezbollah í einni árás Samþykkja frumvarp um aukna gæslu fyrir Trump og Harris Útskrifuð af sjúkrahúsi með hálskraga Felldu einn af leiðtogum Hezbollah Sýndu fyrstu myndböndin í dómsal Hnífjafnt á landsvísu en Harris með forskot í Pennsylvaníu Fógeti skaut dómara Títan bilaði og lenti í árekstri nokkrum dögum fyrir hinstu förina Íbúar Springfield klofnir í afstöðu sinni til heimsóknar Trump Sjá meira