Erlent

Komu mótmælt

Mótmælendur á bæn
Mótmælendur á bæn MYND/AP

Tyrkneska lögreglan handtók á miðvikudag um fjörutíu menn sem mótmæltu væntanlegri komu Benedikts 16. páfa til Tyrklands með því að leggja undir sig Sofíukirkjuna í Istanbúl, eina frægustu byggingu landsins.

Mennirnir eru allir úr flokki tyrkneskra þjóðernissinna, sem áður hefur staðið fyrir mótmælum gegn komu páfa.

Sofíukirkjan var öldum saman ein helsta kirkja kristinna manna. Nú er þar safn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×