Erlent

Ætlar ekki í stjórnmál á ný

Í Hong Kong Thaksin Shinawatra hefur verið á ferðalagi um Asíu ásamt eiginkonu sinni. Herlög eru enn í gildi í Taílandi og því fara þau ekki þangað.fréttablaðið/ap
Í Hong Kong Thaksin Shinawatra hefur verið á ferðalagi um Asíu ásamt eiginkonu sinni. Herlög eru enn í gildi í Taílandi og því fara þau ekki þangað.fréttablaðið/ap MYND/AP

Thaksin Shinawatra, fyrrverandi forsætisráðherra Taílands, hefur alls ekki í hyggju að snúa aftur á svið stjórnmálanna í Taílandi, að því er lögfræðingur hans greindi frá í gær. Thaksin var steypt af stóli í byltingu hers-ins 19. september síðastliðinn.

Thaksin hefur verið á ferðalagi um Asíulönd undanfarna daga, en ætlar ekki að láta sjá sig í Taílandi á næstunni. Herlög eru enn í gildi þar og verða enn um sinn, að sögn forsprakka byltingarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×