Tónlist

Idol-Heiða stjórnar sjónvarpsþætti

vinsælasta tónlistin
Heiða mun kynna allt það vinsælasta í tónlistinni í hverri viku og sýna gömul myndbönd inn á milli í bland við nýtt efni.
vinsælasta tónlistin Heiða mun kynna allt það vinsælasta í tónlistinni í hverri viku og sýna gömul myndbönd inn á milli í bland við nýtt efni. MYND/Brink

Aðalheiður Ólafsdóttir, betur þekkt sem Heiða úr Idolinu, mun stjórna nýjum tónlistarþætti á Skjá einum í vetur þar sem sýnd verða myndbönd með öllu því nýjasta og vinsælasta í tónlist hverju sinni. „Ég mun verða með upprifjun á gömlu og góðu efni inn á milli þannig að þátturinn ætti að geta höfðað til allra,” segir Heiða og bætir því við að þátturinn verði hálftímalangur á hverju föstudagskvöldi.

„Það leggst mjög vel í mig að stjórna þessum þætti og ég er ofsalega spennt að vinna við sjónvarp,” segir Heiða. „Idol-þátturinn var náttúrlega í sjónvarpi en þetta er allt öðruvísi. Þar fékk ég góða reynslu í að venjast myndavélunum og þrátt fyrir að það hafi tekið smá tíma þá er gott að búa að þeirri reynslu,” bætir hún við en hún mun kynna tuttugu vinsælustu lög hverrar viku fyrir sig.

Heiða hefur í nógu að snúast þessa dagana því auk þess að stjórna tónlistarþættinum þá syngur hún í Footloose í Borgarleikhúsinu og um helgar fer hún norður á Akureyri þar sem hún syngur í sýningu með tónlist Ingimars Eydal. „Síðan er ég að kenna söng hjá Þorvaldi Bjarna. Námskeiðinu er að ljúka núna og ég er því að undirbúa tónleika með stelpunum sem ég er að kenna,” segir hinn eldhressa söngkona.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.