Tónlist

Shakira með fernu

Söngkonan Shakira var sigurvegari Latin-Grammy verðlaunanna sem voru afhent á dögunum.
Söngkonan Shakira var sigurvegari Latin-Grammy verðlaunanna sem voru afhent á dögunum. MYND/Getty

Kólumbíska poppstjarnan Shakira fékk fern Latin-Grammyverðlaun við hátíðlega athöfn í New York. Verðlaun hlaut hún m.a. fyrir bestu plötuna og fyrir bestu plötu kvenkyns tónlistarmanns. Sagði hún í þakkarræðu sinni að bæta þyrfti líf innflytjenda sem búa í Bandaríkjunum og bíða eftir því að hljóta ríkisborgararétt.

Dúettinn Calle 13 frá Puerto Ríko fékk þrenn verðlaun, þar á meðal sem besta nýja hljómsveitin. Argentíska rokkstjarnan Gustavo Cerati vann jafnframt tvenn verðlaun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.