Tónlist

Ríflega fimm þúsund kusu

Rúmlega fimm þúsund notendur Vísis tóku þátt í vali á vinsælasta tónlistarflytjandanum en kosningin fór fram hér á Vísi. Kosningunni lauk í kvöld og við tók síma- og SMS-kosning sem stendur fram að lokum hátíðar Íslensku tónlistarverðlaunanna sem fram fer í Þjóðleikhúsinu annað kvöld. Valið stendur nú milli þeirra fimm sem flest atkvæði hlutu í netkosningunni.

 SMS í síma 1900Símakosning
Eivör Pálsdóttiritv 1101900 1101
Í svörtum fötumitv 1102900 1102
Mugisonitv 1103900 1103
Ragnheiður Gröndalitv 1104900 1104
Quarashiitv 1105900 1105
 

 

Undirbúningur fyrir afhendingu Íslensku tónlistarverðlaunanna fyrir árið 2004 hefur staðið yfir frá því í haust. Þetta verður í 11. skipti sem verðlaunin verða afhent. Íslensku tónlistarverðlaunin eru hugsuð sem vegsauki fyrir íslenska tónlist; flytjendum, höfundum og útgefendum til hvatningar.

Hátíðin verður að vanda þéttsetin íslenskum stórstjörnum og munu meðal annars koma fram:

MEZZOFORTE

HJÁLMAR

RAGNAR BJARNASON

RAGNHEIÐUR GRÖNDAL

BRAIN POLICE

JAGÚAR

OG FLEIRI

KYNNAR KVÖLDSINS:

Gísli Marteinn Baldursson

Þórunn Lárusdóttir

Guðmundur Steingrímsson

EINNIG KOMA FRAM:

Lúðrasveit Reykjavíkur, Bubbi Morthens, Camilla Söderberg, Jón Jósep Snæbjörnsson, Sigmundur Ernir Rúnarson, Þorgeir Ástvaldsson, Edda Andrésdóttir, Egill Ólafsson, Selma Björnsdóttir, Ragnhildur Gísladóttir, Logi Bergman Eiðsson, Steinar Berg Ísleifsson, Stefán Hjörleifsson, Bjarni Guðmundsson, Tinna Gunnlaugsdóttir, Tryggvi Baldvinsson, Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir, Nylon og fjöldi annara

Hátíðn hefst klukkan 20 og verður í beinni útsendingu Sjónvarpsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.