Lífið

Boltaspark fyrir börnin

Markakóngar Íslandsmótsins í knattspyrnu, Tryggvi Guðmundsson og Margrét Lára Viðarsdóttir aðstoða við leitina að sparkdrottningu og sparkkóngi ársins í Kringlunni á morgun, laugardag.

Boltasparkið Í Kringlunni er fyrir alla krakka á aldrinum 8-18 ára og hefst leikurinn klukkan 13.30, á Torginu á neðri hæð Kringlunnar. Keppt verður í því að halda bolta á lofti og þeir sem standa sig best fá spurningaspilið Spark að launum.

Nöfn allra þátttakenda fara í pott sem dregið verður úr klukkan 15.00 og verður þar fjöldi verðlauna í boði eins og Spurningaspilið Spark, boltar frá Coca-cola og margt, margt fleira.

Tryggvi Guðmundsson og Margrét Lára Viðarsdóttir verða krökkunum til aðstoðar og árita plaköt og fleira.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.