Lífið

Hjálpum þeim gefið aftur út

Hjálparsveitin svokallaða sem söng Hjálpum þeim fyrir um 20 árum.
Hjálparsveitin svokallaða sem söng Hjálpum þeim fyrir um 20 árum.
Einar Bárðarson tónleikahaldari og Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson tónlistarmaður ætla að gefa út nýja útgáfu af laginu Hjálpum þeim " . Stefnt er að því að lagið verði komið í sölu um næstu mánaðamót.

Lagið Hjálpum þeim var fyrst hljóðritað árið 1986 og selt til styrktar Hjálparstarfi kirkjunnar vegna hungursneyðar í Eþíópíu. Hópur þjóðþekktra söngvara söng í laginu, þar á meðal Bubbi Morthens, Diddú, Kristján Jóhannsson og Björgvin Halldórsson svo einhverjir séu nefndir.

Að sögn Einars Bárðarsonar rennur allur ágóði af sölunni óskiptur til Hjálparstarfs kirkjunnar rétt eins og árið 1986 þegar lagið var fyrst gefið út.

Aðspurður um kveikjuna að útgáfunni segir Einar að það hafi komið til tals í samtölum hans, höfunda lagsins, Björgvins Halldórssonar og Þorvaldar Bjarna að vegna hörmunganna í kjölfar jarðskjálftans í Pakistan væri tækifæri til að reyna við lagið á nýjan leik og vonandi safna peningum sem Hjálparstofnun kirkjunnar gæti nýtt á svæðinu.

Aðspurður hvort þeir hefðu þegar fengið vilyrði frá einhverjum söngvurum segir Einar að síðustu vikur hafi farið í alls kyns undirbúning og verið sé að byrja að hafa samband við þá söngvara sem þeir vilji að syngi í nýju útgáfunni. Hann eigi ekki von á öðru en að helstu söngstjörnur landsins taki vel í að syngja í nýju útgáfunni . Einar segir að aðstandendur verkefnisins hafi ekki enn sett sér nein markmið varðandi sölu. Hann vonist til þess að hin nýja útgáfa falli vel í kramið og fólk styðji framlagið.

Nýja lagið verður tekið upp nú í nóvember og reiknað er með að það fari að hljóma á öldum ljósvakans upp úr miðjum mánuðinum. Platan er svo væntanleg í verslanir og lagið á Tónlist.is um næstu mánaðamót.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.