Sport

Risakaup Real í bígerð?

Real Madrid er tilbúið að borga 110 milljónir punda, eða rúmlega 13 milljarða króna, fyrir Steven Gerrard hjá Liverpool og Thierry Henry Arsenal að sögn enska götublaðsins The Sun. Madridarliðið hefur ekki unnið titil undanfarin tvö keppnistímabil. Framtíð Gerrards hjá Evrópumeisturunum er enn í óvissu. Hann á tvö ár eftir af samningi sínum og er tilbúinn að vera áfram en samningaviðræður hafa enn ekki hafist. Það gæti reynst erfitt fyrir Liverpool að hafna tugmilljóna punda tilboði frá Real Madrid.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×