Sport

Owen fer ekki frá Madrid

David Beckham heldur því fram að félagi sinn í enska landsliðinu og Real Madrid, sé ekki á förum frá félaginu, þrátt fyrir þrálátan orðróm þess efnis á síðustu vikum. "Ég efast um að Owen fari frá Real. Hann hefur leikið mjög vel þegar hann hefur fengið tækifæri og ég sé ekkert fararsnið á honum. Owen er leikmaður sem skilar alltaf sínu ef hann er inni á vellinum", sagði Beckham í samtali við spænska blaðið Marca í morgun.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×