Sport

Sigfús aftur í landsliðið

Viggó Sigurðsson, landsliðsþjálfari karla í handbolta tilkynnti í dag val sitt á 18 manna hópi til undirbúnings og þátttöku í undankeppni Evrópumeistaramótsins. Leiknir verða æfingaleikir við Svía hér heima í byrjun júní og gegn Hvít-Rússum í undankeppni EM, hér heima 12. júní og ytra þann 18. júní. Sigfús Sigurðsson kemur aftur inn í hópinn eftir að hafa verið frá í langan tíma vegna bakmeiðsla. Markverðir eru Birkir Ívar Guðmundsson, Roland Valur Eradze og Björgvin Gústavsson. Aðrir leikmenn eru... Ásgeir Örn Hallgrímsson Þórir Ólafsson Einar Hólmgeirsson Ólafur Stefánsson Alexander Pettersson Dagur Sigurðsson Arnór Atlason Snorri Steinn Guðjónsson Jaliesky Garcia Markús Máni Michaelsson Guðjón Valur Sigurðsson Logi Geirsson Róbert Gunnarsson Vignir Svavarsson



Fleiri fréttir

Sjá meira


×