Sport

Dagur aftur meistari með Bregenz

Dagur Sigurðsson varð í gærkvöld Austurríkismeistari í handknattleik með liði sínu Bregenz, annað árið í röð. Bregenz tryggði sér titilinn með því að vinna Margareten 44-38 í tvíframlengdum síðari úrslitaleik liðanna. Bregenz vann einnig fyrri úrslitaleikinn. Dagur, sem einnig þjálfar liðið, skoraði fimm mörk í leiknum í gær. Þetta var í fjórða skipti á fimm árum sem Bregenz verður meistari.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×