Strandavegur mjög illa farinn 15. maí 2005 00:01
Vegurinn frá Hólmavík á Ströndum að Brú í Hrútafirði er illa á sig kominn. Auknir stórflutningar um veginn hafa leikið hann illa og nú horfa Strandamenn til vegar um Arnkötludal sem myndi stytta leiðina á milli Reykjavíkur og Ísafjarðar um 40 kílómetra. Frá því sjóflutningar í kringum landið lögðust af hefur umferðin um Strandaveg aukist gífurlega. Jón Hörður Elíasson, rekstrarstjóri Vegagerðarinnar á Hólmavík, segir nauðsynlegt að lagfæra veginn. Því miður sé vegakerfið á þessum slóðum þannig að það beri ekki uppi þessa miklu flutninga. Aðspurður hvort það sjái mikið á veginum eftir stóra flutningabíl jánkar Jón því, það sjái talsvert á honum. Jón segir að um hundrað milljónir fáist til lagfæringa á veginum á þessu ári en hann telur það alls ekki nóg. Það þurfi á köflum að byggja veginn upp frá grunni. Ljóst sé að ef engir kaflar á honum verði lagfærðir verulega og byggðir upp þá horfi til vandræða. Jón telur það góðan kost að leggja veg fram Arnkötludal á Ströndum sem myndi fara niður Gautsdal á þjóðveg 60 rétt vestan við Króksfjarðarnes. Sá vegur myndi stytta leiðina á milli Ísafjarðar og Reykjavíkur um 40 kílómetra. Hann segist þó ekki eiga von á því að sú leið verði komin í gangið fyrr en eftir 2012. Aðspurður hvort ekki sé þörf á henni miklu fyrr segir Jón að ef ekkert eigi að gera á leiðinni milli Hólmavíkur og Brúar í Hrútafirði sé það raunin.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Fylgdu eftir ábendingum um aðkomu undirheimanna Innlent Ekki í belti og undir áhrifum þegar hann lést Innlent Skaut hundinn sjálfur og fékk háa sekt Innlent Skipti öllu máli að telja drykkina Innlent Holan alls ekki eina slysagildran Innlent Uppruni stjarnanna óþekktur: „Hver andskotinn hefur verið að setja þetta inn?“ Innlent „Þingflokkur Pírata braut á mér“ Innlent Hætta að sekta fyrir notkun nagladekkja Innlent Spurð hvort hún ætli sér ekkert meira en kennarastarf Innlent Fjórtán ára ráðinn til að hefna fyrir morðið á fimmtán ára Erlent Fleiri fréttir Svikahrappurinn bjó í íbúð hinnar látnu í níu ár Dómur yfir Alberti kveðinn upp á fimmtudag Með ófullnægjandi hjálm þegar banaslys varð „Það er af og frá að ég hafi brotið lög“ Fjölmenntu í Aðalbyggingu HÍ og vilja svör frá rektor „Þingflokkur Pírata braut á mér“ Áfram lokuð þar sem viðgerðirnar undu upp á sig Spurð hvort hún ætli sér ekkert meira en kennarastarf Niðurstaða um Ölfusárbrú væntanleg í þessari viku Skaut hundinn sjálfur og fékk háa sekt Hætta að sekta fyrir notkun nagladekkja Svandís ræðir við hina formennina og ár af átökum fyrir botni Miðjarðarhafs Fylgdu eftir ábendingum um aðkomu undirheimanna Ræstu út mannskap til að kanna frágang fleiri brunna Afgerandi meirihluti með málstað Palestínumanna Ekki í belti og undir áhrifum þegar hann lést Skiptar skoðanir um umtalaða bókun við EES-samninginn Augljóst að ríkisstjórnarsamstarfið sé að nálgast leiðarlok Holan alls ekki eina slysagildran Skipti öllu máli að telja drykkina Segir ráðherra neita að afhenda gögn um bókun 35 Tveir handteknir í tengslum við slagsmál Athafnamaðurinn Þráinn Hafstein Kristjánsson látinn Uppruni stjarnanna óþekktur: „Hver andskotinn hefur verið að setja þetta inn?“ Nýtt eftirlitskerfi á ytri landamærum Schengen-svæðisins Öflugur skjálfti í Bárðarbunguöskju „Hann hverfur ofan í jörðina“ Heppni að ekki fór verr þegar tveggja ára drengur féll niður nokkra metra Risaþotan flaug aftur yfir Reykjavíkursvæðið „Þetta er ekki endanlegt frumvarp“ Sjá meira