Sport

Arnar fær ekki nýjan samning

FH-ingar ætla ekki að framlengja samning við handboltamanninn Arnar Pétursson. Örn Magnússon, formaður handknattleiksdeildar FH, staðfesti þetta í samtali við íþróttadeild fyrir hádegi. Örn segir að Arnar hafi verið með lausan samning og sé ekki inni í framtíðaráformum FH-inga. Örn vildi hvorki játa því né neita að FH-ingar væru að reyna að fá í sínar raðir fyrrverandi leikmann liðsins, Andra Berg Haraldsson, sem undanfarið hefur spilað með Víkingi. HK hefur sagt upp samningi við leikstjórnanda sinn, Ólaf Hauk Ólafsson. Hilmar Sigurgíslason, formaður handknattleiksdeildar HK, segir að Ólafur Haukur hafi átt ár eftir af samningi en vegna samskiptaörðugleika hafi þetta orðið niðurstaðan. HK hefur þegar gert samning við rétthenta skyttu frá Litháen sem kemur til liðsins í sumar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×