Virðisauki lagður á olíugjald 10. maí 2005 00:01
Ríkissjóður nýtir sér upptöku olíugjalds í stað þungaskatts til nærri 500 milljóna króna skattahækkunar. Það gerist með því að á nýja olíugjaldið verður lagður virðisaukaskattur sem var ekki á þungaskatti. Fyrirhuguð kerfisbreyting þann 1. júlí næstkomandi kom til umræðu á Alþingi í gær þegar fjármálaráðherra mælti fyrir frumvarpi um að lækka olíugjaldið tímabundið frá því sem áður hafði verið ákveðið. Kristján L. Möller vakti þá athygli á því að í kerfisbeytingunni fælist skattahækkun. Notendur hafi ekki borgað virðisaukaskatt í þungaskattskerfinu. Virðisaukaskattur myndi hins vegar leggjast á nýja olíugjaldið og þannig myndu notendur olíu greiða einn milljarð króna á ári aukalega en peningarnir færu beint í ríkissjóð eins og búið væri að eyrnamerkja þá núna. Fjármálaráðherra mótmælti ekki þessari staðhæfingu Kristjáns í gær. Þegar upplýsinga var leitað í fjármálaráðuneytinu í dag var vísað í greinargerð sem fylgdi lagafrumvarpinu í fyrra. Þar kom fram að reiknað væri með að tekjuauki ríkissjóðs af viðbótarvirðisaukaskatti vegna þessa yrði um 470 milljónir króna á ári. Hann yrði að mestu leyti vegna ökutækja sem væru undir fjórum tonnum að þyngd þar sem virðisaukaskatturinn væri í flestum tilfellum endurgreiddur til annarra. Mismunurinn á þeim milljarði, sem Kristján hélt fram, og þeim nærri 500 miljónum, sem fram kom í greinargerð frumvarpsins, virðist því skýrast af því að ráðuneytið tekur inn í dæmi endurgreiðslu virðisaukaskattsins.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Fylgdu eftir ábendingum um aðkomu undirheimanna Innlent Ekki í belti og undir áhrifum þegar hann lést Innlent Skaut hundinn sjálfur og fékk háa sekt Innlent Skipti öllu máli að telja drykkina Innlent Holan alls ekki eina slysagildran Innlent Uppruni stjarnanna óþekktur: „Hver andskotinn hefur verið að setja þetta inn?“ Innlent „Þingflokkur Pírata braut á mér“ Innlent Hætta að sekta fyrir notkun nagladekkja Innlent Spurð hvort hún ætli sér ekkert meira en kennarastarf Innlent Fjórtán ára ráðinn til að hefna fyrir morðið á fimmtán ára Erlent Fleiri fréttir Svikahrappurinn bjó í íbúð hinnar látnu í níu ár Dómur yfir Alberti kveðinn upp á fimmtudag Með ófullnægjandi hjálm þegar banaslys varð „Það er af og frá að ég hafi brotið lög“ Fjölmenntu í Aðalbyggingu HÍ og vilja svör frá rektor „Þingflokkur Pírata braut á mér“ Áfram lokuð þar sem viðgerðirnar undu upp á sig Spurð hvort hún ætli sér ekkert meira en kennarastarf Niðurstaða um Ölfusárbrú væntanleg í þessari viku Skaut hundinn sjálfur og fékk háa sekt Hætta að sekta fyrir notkun nagladekkja Svandís ræðir við hina formennina og ár af átökum fyrir botni Miðjarðarhafs Fylgdu eftir ábendingum um aðkomu undirheimanna Ræstu út mannskap til að kanna frágang fleiri brunna Afgerandi meirihluti með málstað Palestínumanna Ekki í belti og undir áhrifum þegar hann lést Skiptar skoðanir um umtalaða bókun við EES-samninginn Augljóst að ríkisstjórnarsamstarfið sé að nálgast leiðarlok Holan alls ekki eina slysagildran Skipti öllu máli að telja drykkina Segir ráðherra neita að afhenda gögn um bókun 35 Tveir handteknir í tengslum við slagsmál Athafnamaðurinn Þráinn Hafstein Kristjánsson látinn Uppruni stjarnanna óþekktur: „Hver andskotinn hefur verið að setja þetta inn?“ Nýtt eftirlitskerfi á ytri landamærum Schengen-svæðisins Öflugur skjálfti í Bárðarbunguöskju „Hann hverfur ofan í jörðina“ Heppni að ekki fór verr þegar tveggja ára drengur féll niður nokkra metra Risaþotan flaug aftur yfir Reykjavíkursvæðið „Þetta er ekki endanlegt frumvarp“ Sjá meira