Aðeins 6,5% gerða í íslensk lög 9. maí 2005 00:01
Aðeins 6,5 prósent af tilskipunum og öðrum gerðum Evrópusambandsins hafa verið tekin inn í íslensk lög. Andstæðingar Evrópusambandsaðildar á Alþingi segja þessar upplýsingar afhjúpa þá blekkingu að Íslendingar þyrftu með EES-samningnum að innleiða 80 prósent af reglugerðaverki Evrópusambandsins. Í skriflegu svari utanríkisráðherra við fyrirspurn Sigurðar Kára Kristjánssonar sem dreift var á Alþingi í morgun kemur fram að á tíu ára timabli frá 1994 til 2004 samþykkti Evrópusambandið tæplega 39 þúsund tilskipanir, reglugerðir og ákvarðanir. Af þeim voru um 2.500, eða 6,5 prósent, teknar inn í EES-samninginn og þar með íslensk lög. Í svari ráðherra kemur fram að langstærstur hluti þeirra gerða sem Evrópusambandið samþykkir fjalli um landbúnað og sjávarútveg sem eru utan EES-samningsins. Fyrirspyrjandi taldi ástæðu til að vekja sérstaka athygli á þessum upplýsingum við upphaf þingfundar í morgun enda kæmu þær verulega á óvart. Hann benti á að málflutningur Evrópusinna bæði innan þings og utan hefði verið sá að Íslendingar innleiddu 80 prósent af öllum lögum Evrópusambandsins án þess að gerðir væru neinir fyrirvarar á því. Það sem kæmi á óvart í þessum máli væri það að það stæði ekki steinn yfir steini í áróðri Evrópusinna fyrir aðild Íslendinga að Evrópusambandinu á síðustu 10-11 árum. Íslendingar stimpluðu ekki neinar gerðir í þeim mæli sem haldið hefði verið fram á Alþingi. Evrópusinnar sögðu þessar upplýsingar engu breyta um sannfæringu sína fyrir því að sækja um aðild sem allra fyrst. Björgvin G. Sigruðsson, þingmaður Samfylkingarinnar, spurði hver viðbrögð Íslendingar ættu að vera þegar Norðmenn sæktu um aðild að Evrópusambandinu í þriðja sinn og þegar EES-samningurinn liði þar með undir lok.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Fylgdu eftir ábendingum um aðkomu undirheimanna Innlent Ekki í belti og undir áhrifum þegar hann lést Innlent Skipti öllu máli að telja drykkina Innlent Skaut hundinn sjálfur og fékk háa sekt Innlent Holan alls ekki eina slysagildran Innlent Uppruni stjarnanna óþekktur: „Hver andskotinn hefur verið að setja þetta inn?“ Innlent Hætta að sekta fyrir notkun nagladekkja Innlent Fjórtán ára ráðinn til að hefna fyrir morðið á fimmtán ára Erlent Athafnamaðurinn Þráinn Hafstein Kristjánsson látinn Innlent Ræstu út mannskap til að kanna frágang fleiri brunna Innlent Fleiri fréttir Sjarmurinn af sérverslun lifi góðu lífi Fjölmenntu í Aðalbyggingu HÍ og vilja svör frá rektor „Þingflokkur Pírata braut á mér“ Áfram lokuð þar sem viðgerðirnar undu upp á sig Spurð hvort hún ætli sér ekkert meira en kennarastarf Niðurstaða um Ölfusárbrú væntanleg í þessari viku Skaut hundinn sjálfur og fékk háa sekt Hætta að sekta fyrir notkun nagladekkja Svandís ræðir við hina formennina og ár af átökum fyrir botni Miðjarðarhafs Fylgdu eftir ábendingum um aðkomu undirheimanna Ræstu út mannskap til að kanna frágang fleiri brunna Afgerandi meirihluti með málstað Palestínumanna Ekki í belti og undir áhrifum þegar hann lést Skiptar skoðanir um umtalaða bókun við EES-samninginn Augljóst að ríkisstjórnarsamstarfið sé að nálgast leiðarlok Holan alls ekki eina slysagildran Skipti öllu máli að telja drykkina Segir ráðherra neita að afhenda gögn um bókun 35 Tveir handteknir í tengslum við slagsmál Athafnamaðurinn Þráinn Hafstein Kristjánsson látinn Uppruni stjarnanna óþekktur: „Hver andskotinn hefur verið að setja þetta inn?“ Nýtt eftirlitskerfi á ytri landamærum Schengen-svæðisins Öflugur skjálfti í Bárðarbunguöskju „Hann hverfur ofan í jörðina“ Heppni að ekki fór verr þegar tveggja ára drengur féll niður nokkra metra Risaþotan flaug aftur yfir Reykjavíkursvæðið „Þetta er ekki endanlegt frumvarp“ Samþykktu ályktun og stefna að kosningum í vor Segir rangt að þau hafi reynt að stöðva lögreglubíl í forgangsakstri Nóg af heitu vatni á Selfossi Sjá meira