Sport

Dagur með sjö mörk

Bregenz sigraði Krems, 29-23, í austurríska handboltanum í gærkvöldi. Dagur Sigurðsson, þjálfari og leikmaður Bregenz, var markahæstur allra á vellinum og skoraði sjö mörk, einu meira en félagi hans, Konrad Wilczynski, og Martin Sicherer, leikmaður Krems. Bæði lið eru með 25 stig en Bregenz er í fyrsta sæti á markamun.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×