Sóttust eftir fundi með Davíð 27. apríl 2005 00:01
Á sama tíma og forsvarsmenn Mannréttindaskrifstofu Íslands reyndu árangurslaust að fá fund með utanríkisráðherra var tekin ákvörðun í ráðuneytinu um að skera framlög til skrifstofunnar niður. Þetta segir stjórnarformaður Mannréttindaskrifstofu Íslands. Utanríkisráðuneytið hefur synjað beiðni Mannréttindaskrifstofu Íslands um fjárframlag fyrir árið í ár. Því hefur verið haldið fram að það skipti öllu máli fyrir áframhaldandi rekstur skrifstofunnar. Davíð Oddsson utanríkisráðherra sagði í fréttum Stöðvar 2 í gær að ráðuneytið hefði lagt til þessa skipun mála við fjárlagagerð í mars síðastliðnum, áður en hann varð utanríkisráðherra. Brynhildur Flóvens, stjórnarformaður Mannréttindaskrifstofunnar, finnst þessi málflutningur einkennilegur því forsvarsmenn stofnunarinnar hafi árangurslaust reynt að fá fund með utanríkisráðherra, bæði Halldóri Ásgrímssyni og Davíð Oddssyni, frá áramótum í fyrra, á sama tíma og núverandi utanríkisráðherra segir að ákvörðun hafi verið tekin um að skera niður fjármagnið til stofnunarinnar. Brynhildur segir að í fjárlögum sem lögð voru fram í haust hafi verið gert ráð fyrir framlagi utanríkisráðuneytisins upp á fjórar milljónir til Mannréttindaskrifstofunnar. Það hafi síðan breyst við lokaumræðu fjárlaga þar sem framlagið var þurrkað út, eftir að Davíð Oddsson var orðinn utanríkisráðherra. Ummæli ráðherrans í gær koma því mjög á óvart að sögn Brynhildar. Brynhildur segir að allt verði gert til að reyna að fá fjármagn til að halda starfsemi skrifstofunnar gangandi. Hún býst m.a. við að leitað verði bæði til fyrirtækja og almennings
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Fylgdu eftir ábendingum um aðkomu undirheimanna Innlent Ekki í belti og undir áhrifum þegar hann lést Innlent Svikahrappurinn bjó í íbúð hinnar látnu í níu ár Innlent Skaut hundinn sjálfur og fékk háa sekt Innlent Skipti öllu máli að telja drykkina Innlent Dómur yfir Alberti kveðinn upp á fimmtudag Innlent „Þingflokkur Pírata braut á mér“ Innlent Uppruni stjarnanna óþekktur: „Hver andskotinn hefur verið að setja þetta inn?“ Innlent Holan alls ekki eina slysagildran Innlent Hætta að sekta fyrir notkun nagladekkja Innlent Fleiri fréttir Formenn stjórnarflokkanna hljóti að ræða framhaldið Orðinn „kokhraustur kvenhatari“ og tækifærissinni Stjórnlaus ásókn í megrunarlyf og „árás“ á flugvöll Svikahrappurinn bjó í íbúð hinnar látnu í níu ár Dómur yfir Alberti kveðinn upp á fimmtudag Með ófullnægjandi hjálm þegar banaslys varð „Það er af og frá að ég hafi brotið lög“ Fjölmenntu í Aðalbyggingu HÍ og vilja svör frá rektor „Þingflokkur Pírata braut á mér“ Áfram lokuð þar sem viðgerðirnar undu upp á sig Spurð hvort hún ætli sér ekkert meira en kennarastarf Niðurstaða um Ölfusárbrú væntanleg í þessari viku Skaut hundinn sjálfur og fékk háa sekt Hætta að sekta fyrir notkun nagladekkja Svandís ræðir við hina formennina og ár af átökum fyrir botni Miðjarðarhafs Fylgdu eftir ábendingum um aðkomu undirheimanna Ræstu út mannskap til að kanna frágang fleiri brunna Afgerandi meirihluti með málstað Palestínumanna Ekki í belti og undir áhrifum þegar hann lést Skiptar skoðanir um umtalaða bókun við EES-samninginn Augljóst að ríkisstjórnarsamstarfið sé að nálgast leiðarlok Holan alls ekki eina slysagildran Skipti öllu máli að telja drykkina Segir ráðherra neita að afhenda gögn um bókun 35 Tveir handteknir í tengslum við slagsmál Athafnamaðurinn Þráinn Hafstein Kristjánsson látinn Uppruni stjarnanna óþekktur: „Hver andskotinn hefur verið að setja þetta inn?“ Nýtt eftirlitskerfi á ytri landamærum Schengen-svæðisins Öflugur skjálfti í Bárðarbunguöskju „Hann hverfur ofan í jörðina“ Sjá meira