Sport

Snorri góður gegn Wilhelmshavener

Grosswallstadt sigraði Wilhelmshavener 22-21 á útivelli í þýsku úrvalsdeildinni í handknattleik í gær. Snorri Steinn Guðjónsson var markahæstur í liði Grosswallstadt með átta mörk og Einar Hólmgeirsson skoraði fjögur. Gylfi Gylfason skoraði fjögur mörk fyrir Wilhelmshavener. Þá vann Minden Wallau Massenheim með 33 mörkumn gegn 27, en marga fastamenn vantaði í lið Massenheim í gær. Gunnar Berg Viktorsson skoraði fjögur mörk þegar Kronau/Östringen sigraði Melsungen 36-27 í uppgjöri toppliðanna í 2. deildinni í Þýskalandi. Melsungen og Kronau eru efst og jöfn í suðurhluta deildarinnar, bæði með 52 stig.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×