Sport

Árni á leið til Flensburg

Árni Þór Sigtryggsson, stórskytta úr Þór, mun fá samning frá þýska meistaraliðinu Flensburg strax eftir helgi. Samningurinn sem er til þriggja ára kemur í kjölfar dvalar Árna Þórs hjá félaginu. Árni Þór staðfesti í samtali við Fréttablaðið í gær að samningurinn væri á leiðinni og að hann væri mjög spenntur fyrir Flensburg. Hann sagði að forráðamenn Flensburg vildu fá sig út strax í sumar en þó ætti hann möguleika á því að spila hér heima næsta vetur ef hann vildi.Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins hafa fjölmörg lið sett sig í samband við Árna Þór, bæði þýsk og spænsk lið, og hefur síminn varla stoppað hjá honum undanfarna daga.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×