Sport

Enn framlengt hjá Fram og ÍBV

Enn þarf að framlengja í viðureignum Fram og ÍBV í 8 liða úrslitum karla í handbolta en staðan að loknum venjulegum leiktíma er 27-27. Fyrri leik þessara liða lauk með sigri Eyjamanna í einum lengsta leik sögunnar sem fór í 2 framlengingar og 2 vítakeppnir. Jón B Pétursson er markahæstur heimamanna með 11 mörk eins og Samúel Árnason sem hefur skorað jafnmörg mörk fyrir ÍBV. Staðan í hálfleik var 14-13 fyrir Fram. Leikurinn fer fram í Íþróttahúsi Fram.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×