Silfur Egils sex ára 7. apríl 2005 00:01 Silfur Egils er sex ára núna um helgina. Þátturinn fór fyrst í loftið 11. apríl 1999 á Skjá einum, sem þá sýndi aðallega gamla Dallasþætti - fyrir alþingiskosningar sem voru þá um vorið. Var talin ástæða til að skerpa á fremur dauflegri pólitískri umræðu. Síðan þá eru þættirnir orðnir hátt í þrjúhundruð talsins. Silfrið hefur verið á Stöð 2 síðustu tvö árin og er nú í beinni útsendingu í klukkan 12 á sunnudögum - í opinni dagskrá. Sex ár þykja nokkuð langur tími í íslensku sjónvarpi; ef lítið er yfir sviðið eru ekki margir sjónvarpsþættir á dagskrá núna sem eiga lengri líftíma Góðir gestir eru væntanlegir í þáttinn á sunnudag. Þar má nefna eina helstu vonarstjörnu íslenskra stjórnmála, Ásdísi Höllu Bragadóttur, bæjarstjóra í Garðabæ, Einar Odd Kristjánsson alþingismann og Össur Skarphéðinsson sem nú á í hörðum formannsslag í Samfylkingunni. Formannskosningin þar hefst eftir fáa daga. Að vanda verður fjallað um þau pólitísku hitamál sem hæst ber um þessar mundir, en einnig reynt að horfa víðar um heiminn, tala um hugmyndir, alþjóðapólitík, þjóðmál í víðustum skilningi. Þá er líklegt að verði rýnt aðeins betur - frá sjónarhóli kvennabaráttu - í arfleifð páfans látna sem vekur nú upp furðulega geðshræringu suður í Róm, en einnig sýnist manni að sé von á skýrslu margumtalaðrar fjölmiðlanefndar á næstu dögum. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Pistlar Silfur Egils Mest lesið Þegar móðir mín kvaddi okkur fyrir einu ári síðan í dag Gísli Hvanndal Jakobsson Skoðun Álit Einhverfupaunksins um ABA meðferð og kennslu á Íslandi Sigrún Ósk Stefánsdóttir Skoðun Ýmislegt um rafmagnsbíla og reiðhjól Valur Elli Valsson Skoðun Mammon hefur náð lífeyrissjóðum á sitt band Halla Signý Kristjánsdóttir Skoðun „Við höfðum öll rangt fyrir okkur“ Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Um vaxtahækkanir og verð á hveiti Haukur Skúlason Skoðun Þessi stórskrítnu norm í óbarnvænu samfélagi Sólveig María Svavarsdóttir Skoðun Öryggi byggir á mönnun og launum Jórunn Frímannsdóttir Skoðun Umhyggja - hvað er það? Árný Ingvarsdóttir Skoðun Forgangsorkan verður ekki skert Tinna Traustadóttir Skoðun