Tíska og hönnun

Svart og tímalaust

Þrátt fyrir litríka tískustrauma ár hvert og mismunandi áherslur í klæðaburði er eitt sem fer aldrei úr tísku og stenst alltaf ströngustu tískukröfur, það eru svartar klassískar flíkur. Örugg viðbrögð við því sígilda vandamáli að finna ekkert í fataskápnum eru að draga fram svörtu skóna, pilsið, kjólinn eða dragtina. Það einfaldlega getur ekki klikkað.

Svartar flíkur eru flottar og fágaðar og kona klædd í svart frá toppi til táar stendur fyrir glæsileika og öryggi.

Að sjálfsögðu skiptir málið að flíkurnar séu vel með farnar og þeim rétt teflt saman, það virkar ekki vel að vera í mörgum svörtum tónum, blátóna, græntóna og svo útjaskaða grátóna, það gengur ekki.

Sem fyrr segir er svart einfaldlega klassík og fjárfesting í svartri kápu eða dragt mun alltaf borga sig til lengri og skemmri tíma.

Öll föt fást í Kultur.

Skór kr. 10.990
Belti kr. 8.990
Peysa kr. 15.990





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.