Aðeins bráðabirgðalausn 16. mars 2005 00:01 "
Þó að einhverjir sveitarstjórnarmenn séu tilbúnir að skrifa upp á þennan samning þá er mikil almenn óánægja með þessa niðurstöðu," segir Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði. Lúðvík er einn fulltrúa sveitarfélaga í tekjustofnanefnd ríkis og sveitarfélaga en félagsmálaráðherra kynnir niðurstöður hennar á Alþingi í dag. Lúðvík segist óhress með þær bráðabirgðalausnir sem felast í þeim tillögum sem gerðar eru og hefur skilað séráliti. "Að mínu viti ganga þessar hugmyndir alls ekki nógu langt. Stefna sveitarfélaganna var sú þegar gengið var til borðs að ná fram réttlæti og eðlilegri tekjuskiptingu milli ríkis og sveitarfélaga. Bæta þannig slæman hag sveitarfélaganna þannig að máli skipti til framtíðar en ekki til bráðabirgða. Hér eru menn hins vegar aðeins að horfa til næstu tveggja til þriggja ára." Lúðvík segir fleiri vera vonsvikna með störf nefndarinnar enda hafi verið meira kapp en forsjá í mörgum þeim sveitarstjórnarmönnum sem skrifuðu undir samninginn. "Þegar menn horfa til uppstokkunar á sveitarstjórnarstiginu, fækkun sveitarfélaga, tilfæringu enn fleiri og stærri verkefna til sveitarfélaganna þá verður að byggja grunninn í upphafi með þeim hætti að auðvelt sé að stíga næstu skref. Þessi litli áfangi sem nú er samkomulag um breikkar ekki að mínu viti almennan tekjustofn sveitarfélaganna og það sætti ég mig engan veginn við." Fram kemur á vef Halldórs Halldórssonar, bæjarstjóra á Ísafirði, að þó útkoman standist ekki væntingar þær er sveitarfélögin hafi gert í upphafi hafi engu að síður tekjuaukning náðst og sérstaklega eigi það við um þau sveitarfélög sem glími við erfiðan rekstur.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Ekki í belti og undir áhrifum þegar hann lést Innlent Fylgdu eftir ábendingum um aðkomu undirheimanna Innlent Skipti öllu máli að telja drykkina Innlent Holan alls ekki eina slysagildran Innlent Uppruni stjarnanna óþekktur: „Hver andskotinn hefur verið að setja þetta inn?“ Innlent Fjórtán ára ráðinn til að hefna fyrir morðið á fimmtán ára Erlent Athafnamaðurinn Þráinn Hafstein Kristjánsson látinn Innlent Hætta að sekta fyrir notkun nagladekkja Innlent Segir ráðherra neita að afhenda gögn um bókun 35 Innlent Ræstu út mannskap til að kanna frágang fleiri brunna Innlent Fleiri fréttir Niðurstaða um Ölfusárbrú væntanleg í þessari viku Skaut hundinn sjálfur og fékk háa sekt Hætta að sekta fyrir notkun nagladekkja Svandís ræðir við hina formennina og ár af átökum fyrir botni Miðjarðarhafs Fylgdu eftir ábendingum um aðkomu undirheimanna Ræstu út mannskap til að kanna frágang fleiri brunna Afgerandi meirihluti með málstað Palestínumanna Ekki í belti og undir áhrifum þegar hann lést Skiptar skoðanir um umtalaða bókun við EES-samninginn Augljóst að ríkisstjórnarsamstarfið sé að nálgast leiðarlok Holan alls ekki eina slysagildran Skipti öllu máli að telja drykkina Segir ráðherra neita að afhenda gögn um bókun 35 Tveir handteknir í tengslum við slagsmál Athafnamaðurinn Þráinn Hafstein Kristjánsson látinn Uppruni stjarnanna óþekktur: „Hver andskotinn hefur verið að setja þetta inn?“ Nýtt eftirlitskerfi á ytri landamærum Schengen-svæðisins Öflugur skjálfti í Bárðarbunguöskju „Hann hverfur ofan í jörðina“ Heppni að ekki fór verr þegar tveggja ára drengur féll niður nokkra metra Risaþotan flaug aftur yfir Reykjavíkursvæðið „Þetta er ekki endanlegt frumvarp“ Samþykktu ályktun og stefna að kosningum í vor Segir rangt að þau hafi reynt að stöðva lögreglubíl í forgangsakstri Nóg af heitu vatni á Selfossi Glerbrot í lauginni „Kveður við nýjan tón í samstarfinu sem er efnislega lokið“ Stjónmálafræðingur segir kosningar nær en marga gruni Nýr formaður VG, seðlabankastjóri og ástandið á Gaza Íslensk flugáhöfn horfði á ljónaárás rétt við hótelið Sjá meira