Sport

Ólafur og félagar mæta Montpellier

Dregið var í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu og EHF-bikarsins í handnattleik í dag. Í EHF-keppninni munu Guðjón Valur Sigurðsson og félagar í Tusem Essen mæta Lukoil - Dynamo Astrakhan frá Rússlandi og Gummersbach leikur gegn lærisveinum Alfreðs Gíslasonar í Magdeburg. Sigfús Sigurðsson, sem fór nýlega í aðgerð á baki, verður ekki leikfær fyrr en eftir mánuð en Arnór Atlason verður sínum mönnum til fulltingis. Í Meistaradeildinni dróst Ciudad Real, lið Ólafs Stefánssonar, gegn franska liðinu Montpellier og slóvenska liðið Celje Pivovarna Lasko mætir Barcelona frá Spáni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×